Nýjast á Local Suðurnes

Grindavíkurvegur lokaður í dag

Grindavíkurvegur verður lokaður frá klukkan 9:00 til kl. 19:00 í dag, 5. október.

Stefnt er að því að þvera Grindavíkurveg milli Bláalónsvegar og Grindavíkur (Nesvegar), vegna lagnavinnu og verður veginum lokað. Hjáleið verður um Bláalónsveg og viðeigandi merkingar settar upp.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið, segir á vef Vegagerðarinnar