Nýjast á Local Suðurnes

Ólögráða á ferðinni með kannabis

Í bif­reið sem var stöðvuð við hefðbundið eft­ir­lit fund­ust meint kanna­bis­efni við leit að feng­inni heim­ild. Þrjú ólögráða ung­menni voru í bif­reiðinni, ásamt öku­manni, og var haft sam­band við for­eldra þeirra og málið til­kynnt til barna­vernd­ar.

Þá voru fá­ein­ir til viðbót­ar tekn­ir úr um­ferð vegna gruns um vímu­efna­akst­ur, segir í tilkynningu frá lögreglu.