Nýjast á Local Suðurnes

Semja við Ellert Skúlason hf. um 500 milljóna gatnagerð

Myndin tengist fréttinni ekki beint Mynd: Facebook/Ellert Skúlason

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt tillögu framkvæmdastjóra umhverfissviðs sveitarfélagsins um að taka lægsta tilboði í gatnagerð við Dalshverfi 3.

Tilboðið, frá verktakafyrirtækinu Ellert Skúlason hf. Hljóðar upp á 85,47% af kostnaðaráætlun, eða tæplega 460 milljónir króna. Verkið skiptist í tvo hluta og á sá fyrri að vera tilbúinn í lok ágúst og sá síðari í lok árs.

Gert er ráð fyrir að úthlutun lóða hefjist síðsumars.