Nýjast á Local Suðurnes

Áfram drónabann yfir Grindavík

Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug á svæði sem nær í fjögurra kílómetra radius umhverfis hnit 6353N02222V.

Bannið gildir til kl. 23:59 þann 15. febrúar 2024. Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644, segir í tilkynningu.