Nýjast á Local Suðurnes

Þrengt í eina akrein á Reykjanesbraut vegna malbikunar

Á morg­un, þriðju­dag­inn 30.maí, er stefnt á að fræsa og mal­bika Reykja­nes­braut á milli Hvassa­hrauns og af­leggj­ara við Vatns­leysu­strand­ar­veg í suðvest­ur átt.

Þrengt verður í eina ak­rein og viðeig­andi merk­ing­ar og hjá­leiðir sett­ar upp. Áætlað er að fram­kvæmd­irn­ar standi frá kl. 06:00 til kl. 19:00.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni, en þar eru veg­far­end­ur beðnir um að virða merk­ing­ar og hraðatak­mark­an­ir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við við vinnu mjög ná­lægt ak­braut­um.