Nýjast á Local Suðurnes

Njarðarbraut lokuð næstu daga

Njarðarbraut í Reykjanesbæ verður lokuð á milli Borgarvegar og Bolafóts/Sjávargötu vegna framkvæmda næstu daga. Gert er ráð fyrir að opna götuna aftur föstudaginn 30. júlí. Hjáleiðir verða merktar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ.

Best er að nota Sjávargötuna-Hafnarbraut til þess að komast í gegnum Njarðvíkurnar, segir einnig í tilkynningunni.

Akandi vegfarendum er bent á að aka með varúð í gegnum íbúðagötur þar sem hámarkshraði er 30 km/klst.