Nýjast á Local Suðurnes

Buðu 5,6 milljarða króna í endurgerð flugbrauta á Keflavíkurflugvelli

Verktakafyrirtækið ÍAV átti hagstæðasta tilboð í endurgerð flugbrauta Keflavíkurflugvallar. Tilboð ÍAV hljóðaði upp á rúma 5,6 milljarða króna en tilboð Ístak var rúmir 6,1 milljarður. Kostnaðaráætlun er rúmir 5,2 milljarðar.

Verkið felst í eftirfarandi verkþáttum: Flugbraut 02/20 verður endurgerð sumarið 2016 og flugbraut 11/29 sumarið 2017. Yfirborð flugbrauta verður endurnýjað sem og rafmagns- og flugbrautaljósakerfi. Einnig verður flugleiðsögubúnaður á öllum brautum endurnýjaður.