Finndu út hvar er best að búa á Suðurnesjum

Viðskiptaráð hefur opnað nýjan örvef þar sem mögulegt er að bera saman kostnaðinn við að búa í mismunandi sveitarfélögum.
Á vefnum er hægt að setja inn upplýsingar um forsendur út frá búsetu, fjölskyldusamsetningu, launatekjum og stærð húsnæðis.
Í tilkynningu frá Viðskiptaráði kemur fram að hægt sé að sjá yfirlit yfir skatta, gjöld og skuldir sveitarfélaganna. Einnig er hægt að bera niðurstöðurnar saman við landsmeðaltal og stilla upp samanburði á milli ákveðinna sveitarfélaga, að því er kemur fram í tilkynningunni.
Í tilkynningu Viðskiptaráðs er tekið dæmi um eftirfarandi fjölskyldu:
Foreldrar og tvö börn
Samanlögð laun foreldranna eru 1 milljón króna á mánuði fyrir skatt
Annað barnið er á leikskóla og hitt í grunnskóla
Fjölskyldan býr í 100 fm íbúð í Reykjavík
Þegar upplýsingar um fjölskylduna eru slegnar inn kemur í ljós að af sveitarfélögunum á Suðurnesjum sé best að búa í Garði sem lendir í 15. sæti á landsvísu, Reykjanesbær er í 42. sæti yfir þau sveitarfélög þar sem hagstæðast er fyrir fjölskylduna að búa, Sandgerðisbær í 52. og Grindavíkurbær í því 57.. Miðað við gefnar forsendur fjölskyldunnar væri hagstæðast að búa í Grímsnes- og Grafningshreppi en óhagstæðast að búa á Grundarfirði.