Nýjast á Local Suðurnes

Vatnsnesvegur 8 auglýstur til leigu

Reykjanesbær hefur auglýst fasteignina Vatnsnesvegi 8 til leigu, en áform eru uppi um endurskoðun skipulags á Vatnsnesi en þó þannig að þetta hús standi og lóðin verði óbreytt.

Í auglýsingu kemur fram að húsið þarfnist verulegra og kostnaðarsamra endurbóta, bæði að utan og innan. Gert er ráð fyrir að leigutaki, í samráði við Reykjanesbæ, sjái um að framkvæma endurbætur á húsinu sem uppfylla ströngustu kröfur og greiði þannig leiguna, að hluta eða öllu leyti.

Áhugasamir leigjendur eru hvattir til að kynna sér ástand hússins vel hér. Senda má fyrirspurnir á netfangið; Vatnsnesvegur8@reykjanesbaer.is. Hægt er að bóka skoðun með því að senda tölvupóst á sama netfang eða hafa samband við starfsmenn eignaumsýslu á Umhverfissviði Reykjanesbæjar. 

Húsið er leigt með þeirri kvöð að umráðaaðili tryggi varðveislu gamalla minja í húsinu, svo sem húsbúnaðar og mynda og ábyrgist að sett verði upp upplýsingaskilti þar sem fjallað er um sögu hússins og umhverfisins. Þá skal nafnið Vatnsnes tengt þeirri starfsemi sem fram fer í húsinu. Loks skal umráðaaðili tryggja að húsið verði opið almenningi ef þess er óskað t.d. í tengslum við safnadaga, menningarhátíðir og þess háttar.

Tillögur að nýtingu hússins skulu sendar bæjarstjóra Reykjanesbæjar með rafrænum hætti á ofangreint netfang eigi síðar en 1. september 2020. Áskilinn er réttur til að hefja viðræður við einn eða fleiri aðila eða hafna öllum tillögum.