Nýjast á Local Suðurnes

Marriott hótel opnar í Reykjanesbæ á næsta ári – Framkvæmdir hefjast strax

Nýtt 150 herbergja Courtyard by Marriott flugvallarhótel verður opnað við Keflavíkurflugvöll á næsta ári. Fyrsta skóflustungan að hótelinu verður tekin í dag en framkvæmdir hefjast strax í kjölfarið og er fjármögnun verkefnisins að fullu lokið. Stefnt er að opnun hótelsins eftir rúmt ár eða haustið 2019. Forsvarsmenn hótelsins telja að mikill vöxtur í tengiflugi í gegnum Keflavíkurflugvöll kalli á stórt flugvallarhótel undir alþjóðlegu vörumerki. Marriott er stærsta hótelkeðja heims með yfir 6500 hótel og 30 vörumerki í rekstri. Þar af eru rúmlega 1.100 Courtyard hótel og er þau meðal annars að finna við helstu flugvelli í Evrópu. Þá er Marriott keðjan einnig um þessar mundir að undirbúa opnun fimm stjörnu hótels við hlið Hörpu.

Sérleyfishafi Courtyard hótelsins verður hið íslenska Capital Hotels sem þegar rekur fjögur hótel í Reykjavík og eitt í Borgarnesi. Courtyard by Marriott hótelin eru þriggja stjörnu. Gestir hafa aðgang að fjölbreyttri funda- og veitingaaðstöðu, verslun sem er opin allan sólarhringinn og bistró-veitingastað auk líkamsræktaraðstöðu. Stutt er frá hótelinu að athafnasvæði allra helstu bílaleiga við flugvöllinn.

Mynd: Aðaltorg ehf – Séð yfir flugvallarsvæðið af byggingarreit hótelsins.

Byggingaraðili hótelsins er fyrirtækið Aðaltorg ehf. í Reykjanesbæ en fyrsti áfangi í fasteignaþróun félagsins við samnefnt Aðaltorg var eldsneytisstöð og hóf Olís rekstur ÓB stöðvar á svæðinu síðastliðið haust. Annar áfangi er bygging hótelsins en í þriðja áfanga hyggst félagið reisa fjölbreytt verslunar- og þjónusturými. Alls á fyrirtækið byggingarétt upp á tæpa 25.000 m2 á lóðinni sem er við Reykjanesbraut rétt áður en komið er að flugstöðinni. Ekið er inn á lóð hótelsins frá Aðalgötu en hún liggur frá Reykjanesbrautinni og sem leið liggur niður í miðbæ Reykjanesbæjar.

„Þetta er stór áfangi að fá Marriott þarna inn á Aðaltorg. Kveikjan kom þegar ISAVIA kynnti framtíðarhugmyndir sínar varðandi uppbyggingu flugvallarsvæðisins. Þróun Aðaltorgs hefur staðið yfir undanfarin tvö ár og er liður í frekari uppbyggingu á þjónustu í kringum alþjóðaflugvöllinn. Samið hefur verið við Íslenska aðalverktaka um byggingu hótelsins og framkvæmdir hefjast strax. Það liggur fyrir glæsileg framtíðarsýn um þróun flugvallarsvæðisins og það er afar áhugavert fyrir okkur í Reykjanesbæ að koma að þeirri uppbyggingu.“ Segir Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs í tilkynningu.

Árni Sólonsson, framkvæmdastjóri sérleyfishafans Capital Hotels degir það mikinn heiður að hafa orðið fyrir valinu til að reka fyrsta sérleyfishótel Marriott á Íslandi. “Marriott er með mjög sterkt vörumerki, þau hafa gert samninga við fjölmörg flugfélög um gistingu fyrir áhafnir og þá munu félagar í tryggðarklúbb Marriott fá tilboð um að koma til Íslands að gista á góðum kjörum. Þetta verður veglegt flugvallarhótel fyrir bæði viðskiptafarþega og fjölskyldufólk í ferðum sínum um Keflavíkurflugvöll. Ísland hefur stimplað sig inn sem einn eftirsóttasti áfangastaður heims og þá hefur flugvöllurinn góða möguleika á að verða enn mikilvægari tengipunktur í flugi milli heimsálfa á næstu árum. Það er mikil þekking sem Marriott kemur með enda stærsta hótelkeðja heims. Á móti höfum við mikla reynslu af rekstri hótela í þessum verðflokki hér á landi. Við höfum staðfasta trú á Íslandi sem áfangastað til langs tíma.“

Nánar um Courtyard by Marriott http://courtyard.marriott.com/amenities