Nýjast á Local Suðurnes

Vegagerðin og Ístak ná samkomulagi um tvöföldun Reykjanesbrautar

Vegagerðin og Ístak skrifuðu í dag undir verksamning um breikkun Reykjanesbrautar, frá Kaldárselsvegi vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót.

Fjögur tilboð bárust í verkið og var Suðurnesjafyrirtækið Ellert Skúlason lægstbjóðandi í samstarfi við tvö önnur fyrirtæki. Vegagerðin mat fyrirtækin þrjú ekki hæf í verk af þessari stærðargráðu oggekk til samninga við Ístak eftir ítarlegt mat á tilboðum.

Samkvæmt áætlunum eiga framkvæmdir að hefjast nú í byrjun maí. Verklok eru áætluð 1. nóvember 2020.

Í dag var einnig skrifað undir samninga við Mannvit um eftirlit með verkinu.