Banaslys í svefnskála fiskverkunarfyrirtækis á Reykjanesi
Einn maður lést og annar hefur verið fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt vinnutengt slys, sem átti sér stað hjá fiskverkunarfyrirtækinu Háteigi á Reykjanesi í nótt. Mennirnir tveir höfðu dvalið í svefnskála sem stendur í nágrenni verksmiðju Háteigs. Þegar að var komið í morgun var annar mannanna látinn, en hinn var fluttur á sjúkrahús.
Frá þessu er greint á mbl.is, en þar kemur fram að Vinnueftirlitinu og lögreglu hafi borist tilkynning um málið um klukkan átta í morgun og að mjög sterk lykt sé inni í verksmiðjunni og á svæðinu í kring.