Nýjast á Local Suðurnes

Gríðarlegt tjón við Ægisgötu – Sjáðu myndbandið!

Það hefur vart farið framhjá neinum að ofsaveður gekk yfir Suðurnesjasvæðið í gær og þaðan af síður ætti það að hafa farið framhjá nokkrum manni að töluvert mikið tjón varð af völdum veðursins.

Einna mest varð tjónið við Ægisgötu í Reykjanesbæ en þar skolaði stærðar grjóti á land auk þess sem malbik fór af veginum á stórum hluta og dreifðist yfir stórt svæði.

Vídeóbloggarinn Ívar Gunnarsson gerir þessu góð skil í nýju myndbandi hvar hann fer á svæðið og skoðar skemmdirnar.