Nýjast á Local Suðurnes

Gul viðvörun – Íbúar hreinsi frá niðurföllum

Veðurstofan varar við Suðaustan hvassviðri eða stormi með talsverðri rigningu og hlýnandi veðri og hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland og höfðuborgarsvæðið frá miðnætti.

Búast má við miklum leysingum og auknu afrennsli. Mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.