Nýjast á Local Suðurnes

Grjótgarðar með lægsta tilboðið í lóðarfrágang

Grjótgarðar ehf. buðu besta verðið í frágang lóðar við Stapaskóla í Reykjanesbæ, en tilboð í verkið voru opnuð í gær. Lóð Stapaskóla er um 20.000 fermetrar að stærð, fjölbreytt með góðu aðkomusvæði og sleppistæðum ásamt stóru bílastæði við aðkomu skólans frá Unnardal.

Fimm tilboð bárust í verkið og hljóðaði tilboð Grjótgarða upp á tæplega 354 milljónir króna. Kostnaðaráætlun Reykjanesbæjar er 414 milljónir króna. Unnið er að yfirferð tilboða.