Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn á brautinni og sektaður um 97.500 krónur

Erlendur ferðamaður sem var nýverið á hraðferð á Reykjanesbraut þurfti að greiða 97.500 krónur í sekt þar sem bifreið hans mældist á 153 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Auk hans hafa 14 ökumenn verið sektaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum.

Þá voru átta ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefnaaksturs. Þrír þeirra voru án ökuréttinda.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að alltof algengt sé að ökumenn virði ekki stöðvunarskyldu, leggi bifreiðum sínum ólöglega eða tali í síma án handfrjáls búnaðar. Eitt tilvik brota á umferðarlögum er einu tilviki of mikið og viðkomandi eru sektaðir fyrir slík brot eins og kunnug er.