sudurnes.net
Tekinn á brautinni og sektaður um 97.500 krónur - Local Sudurnes
Erlendur ferðamaður sem var nýverið á hraðferð á Reykjanesbraut þurfti að greiða 97.500 krónur í sekt þar sem bifreið hans mældist á 153 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Auk hans hafa 14 ökumenn verið sektaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Þá voru átta ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefnaaksturs. Þrír þeirra voru án ökuréttinda. Í tilkynningu frá lögreglu segir að alltof algengt sé að ökumenn virði ekki stöðvunarskyldu, leggi bifreiðum sínum ólöglega eða tali í síma án handfrjáls búnaðar. Eitt tilvik brota á umferðarlögum er einu tilviki of mikið og viðkomandi eru sektaðir fyrir slík brot eins og kunnug er. Meira frá SuðurnesjumÁ von á 130 þúsund króna sekt eftir hraðaksturFær 90.000 króna sekt fyrir hraðakstur – Lögregla með klippur á loftiTólf kærðir fyrir hraðakstur – Sá sem hraðast ók fær 150.000 króna sektDýrkeyptur hraðakstur og svipting ökuleyfisRúmlega tvítugur í virkilega slæmum málumTekinn á 150 kílómetra hraða á Garðvegi – Fær 130.000 króna sektLögreglan með klippurnar á loftiSvipting ökuleyfis og 130.000 króna sekt fyrir að aka á 147 km/hÓk of hratt undir áhrifum fíkniefna – Sviptur á staðnumMældist á 149 kílómetra hraða – Svipting og 210 þúsund [...]