Nýjast á Local Suðurnes

Kinga Korpak að gera góða hluti í golfi

Samkvæmt síðunni European Golf Rankings er Kinga Korpak í fjórða sæti yfir bestu kylfinga í flokki stúlkna 12 ára og yngri. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Kingu og Golfklúbb Suðurnesja, en Kinga hefur verið að gera stórkostlega hluti í keppni undanfarið.

Hún hafnaði t.a.m. í öðru sæti á Íslandsmótinu fyrir rúmri viku síðan eftir bráðabana. Kinga leiddi Íslandsmótið og var fagnað sem sigurvegara í lok móts en fékk dæmt á sig víti eftir keppni sem leiddi til bráðabana sem hún tapaði, þetta kemur fram á heimasíðu Golfklúbbs Suðurnesja, gs.is.