Nýjast á Local Suðurnes

Fóru í krefjandi verkefni á toppi Þorbjarnar

Í fyrrakvöld var óskað eftir aðstoð Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar þegar varaaflstöð á toppi fjallsins Þorbjarnar bilaði. Ýmis búnaður er á toppnum, meðal annars mikilvægir sendar fyrir neyðarrás skipa, fjarskiptakerfi fyrir flugvélar í aðflugi til Keflavíkur.

Verkefnið var afar krefjandi og þurfti björgunarsveitarfólk meðal annars að notast við spil á sérútbúnum bílum auk þess sem handmoka þurfti í gegnum stærsta skaflinn á toppi fjallsins.

Frá þessu er greint á Facebook-síðu sveitarinnar, en færsluna má sjá hér fyrir neðan:

Á toppi Þorbjarnar er gríðarlega mikilvægur sendastaður en þar má finna útvarps- og símasenda ásamt sendum fyrir mikilvægt fjarskiptakerfi viðbragðsaðila. Að auki eru þarna mikilvægir sendar fyrir neyðarrás skipa, fjarskiptakerfi fyrir flugvélar í aðflugi til Keflavíkur og ýmislegt fleira.
Í eldgosinu nú í janúar skemmdist raflína sem sá þessum sendastað fyrir raforku og tók því varaaflstöð á toppi fjallsins við þessu mikilvæga verkefni. En í fyrrakvöld bilaði svo umrædd rafstöð og þá voru góð ráð dýr.
Um kvöldmat fór vaskur hópur frá sveitinni ásamt starfsmönnum Mílu af stað upp á fjallið með stóra rafstöð á kerru. Til þess að komast upp á topp þurfti að beyta ýmsum brögðum, meðal annars nota spilið á bílunum til þess að hjálpast að upp ásamt því að handmoka þurfti í gegnum stærsta skaflinn á toppi fjallsins. Rétt undir miðnætti var rafstöðin komin í gang á sínum stað og sendastaðurinn kominn í öruggan rekstur aftur

Þetta verkefni er aðeins eitt af fjölmörgum síðustu daga en sveitin hefur verið að störfum á degi hverjum frá því 10. Janúar s.l.