Nýjast á Local Suðurnes

Kortleggja árekstra – Hér geturðu séð hvar flest óhöppin verða í Reykjanesbæ!

Umferðastofa, í samvinnu við sveitarfélögin og lögreglu, hefur birt kort af þeim stöðum sem óhöpp eiga sér stað. Í Reykjanesbæ eru upplýsingarnar birtar á kortavefsjá sveitarfélagsins, sem er að finna hér.

Ef kortið er skoðað má sjá að flest minniháttar óhöpp eiga sér stað í kringum miðbæinn, við flugstöðina og verslunarkjarna. Árekstrar sem átt hafa sér stað á Reykjanesbraut eru þó ekki skráðir í kortavefsjánna, nema þeir hafi gerst við gatnamót inn í sveitarfélagið.