Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða upp á sérhæfð foreldrafærninámskeið fyrir flóttafólk

Reykjanesbær mun þróa og bjóða upp á sérhæfð foreldrafærninámskeið fyrir flóttafólk sem tala ekki íslensku og geta þar af leiðandi ekki nýtt sér þau foreldrafærninámskeið sem þegar standa til boða. Samningur þessa efnis við barna- og menntamálaráðherra var undirritaður á dögunum.

Megináherslan verður á fjölskyldur á flótta sem fengið hafa vernd á Íslandi en námskeiðið mun einnig standa breiðari hóp til boða, það er innflytjendum sem ekki tala íslensku. Markmiðið er að auka farsæld fjölskyldna sem fengið hafa vernd og veita snemmtækan stuðning við þær sem lið í þjónustu Reykjanesbæjar við flóttafólk, segir í tilkynningu.

„Mikilvægt er að standa vel að móttöku flóttafólks og stuðla að farsælli inngildingu barnafjölskyldna í samfélagið. Markviss stuðningur við foreldra í uppeldi barna er ein arðbærasta fjárfestingin samkvæmt rannsóknum. Fyrir ári síðan undirritaði ég samning við Háskóla Íslands um slík námskeið í leik- og grunnskólum landsins. Mikilvægt er að námskeiðin standi öllum til boða, ekki síður flóttafólki og innflytjendum sem hafa ekki enn náð fullri færni í íslensku,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra við þetta tilefni.