Nýjast á Local Suðurnes

Setja af stað söfnun fyrir börn Lúðvíks

Íbúar í Grindavík hafa sett af stað söfnun fyrir börn Lúðvíks Péturssonar, sem er saknað eftir að hafa fallið í sprungu við störf í Grindavík þann 10. janúar síðastliðinn.

Frá þessu er greint í færslu á Facebook.

„Við íbúar í Grindavík ætlum að sýna samhug í verki og setja í gang söfnun fyrir börn Lúðvíks Péturssonar. Margt smátt gerir eitt stórt fyrir börn hans. Peningurinn sem safnast rennur beint til barnanna hans. Ég mun reglulega uppfæra og leyfa ykkur að fylgjast með hvernig söfnunin gengur. Þætti vænt um að þeir sem taka þátt deili þessum status og láti sem flesta vita af þessari söfnun. Það hefur verið opnaður bankareikningur fyrir söfnunina og má finna hann her fyrir neðan,“ segir í færslunni

Reikningurinn er á nafni Ástu Kristínar, dóttur Lúðvíks. Þeir sem vilja og hafa tök á geta lagt inn á neðangreindan reikning:

Kennitala: 090499-2039
Reikningur: 0123-15-119662 

Mynd: Facebook