Nýjast á Local Suðurnes

Isavia fær afhenta rafbíla – Liður í að minnka kolefnisspor starfseminnar

Isavia hefur fengið afhenta þrjá nýja Kia Soul EV rafbíla frá Bílaumboðinu Öskju. Bílarnir eru mjög umhverfismildir og hagkvæmir enda hreinir rafbílar. Bifreiðarnar hafa 212 km drægni við bestu aðstæður. Kaupin á bílunum eru liður í því að minnka kolefnisspor starfsemi Isavia á Keflavíkurflugvelli.
 „Við erum spennt fyrir því að taka rafmagnsbíla í notkun við eftirlit innan flugvallarsvæðisins og teljum þá smellpassa við þarfir okkar. Auk þess mun notkun þeirra stuðla að minni útblæstri og þannig eru kaupin á þeim liður í því að minnka kolefnisspor starfseminnar á Keflavíkurflugvelli, en við höfum sett okkur markmið um að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda umtalsvert í samræmi við skuldbindingar okkar í loftslagsmálum,” segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri tækni- og eignasviðs Keflavíkurflugvallar.
 ,,Við hjá Öskju erum sannfærð um að Kia Soul EV bílarnir munu koma vel út í þeim verkefnum sem þeim er ætlað að sinna hjá Isavia. Kia Soul EV hefur verið að standa sig mjög vel. Bílarnir eru allir með 7 ára ábyrgð og einnig rafhlöður þeirra. Þeir eru allir vel útbúnir m.a. með íslensku leiðsögukerfi, bakkmyndavél, nálægðaskynjurum að framan og aftan, leðursætum, hita í sætum frammí og afturí. Kia Soul EV er einnig vel búinn öryggisbúnaði og m.a. með svonefndum VESS-búnaði er sendir frá sér vélarhljóð til viðvörunar á undir 20 km/klst ferð og ávallt þegar bakkað er. Þessi búnaður er m.a. til að auka öryggi gangandi vegfarenda,” segir Kristmann Freyr Dagsson, sölustjóri flotasölu Kia hjá Bílaumboðinu Öskju.