Nýjast á Local Suðurnes

30 milljónir í verkefni sem íbúar kusu um

Mynd: Facebook- Ozzo

Kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Reykjanesbær er lokið. Alls bárust 3.484 atkvæði í þau 27 verkefni sem kosið var um og ánægjulegt hversu margir tóku þátt.


Á kjörskrá voru um 16.200 einstaklingar en það voru íbúar 15 ára og eldri í Reykjanesbæ sem gátu tekið þátt í kosningunni. Framtíðarnefnd Reykjanesbæjar vann úr öllum innsendum hugmyndum og alls var kosið um 27 hugmyndir.
Þær hugmyndir sem voru hlutskarpastar og munu núna fara í endanlegt kostnaðarmat:

  • Ævintýralegt leiksvæði í Skrúðgarði – (372 atkvæði)
  • Vatnsholt Rekjanesbæ (Trúðaskógur) – (327 atkvæði)
  • Strandsvæði í Seylu – (225 atkvæði)
  • Ærslabelgur og leiktæki í Inni Njarðvík – (218 atkvæði)
  • Úti-vísindaleiktæki fyrir börn – (154 atkvæði)
  • Fótboltagolfvöllur – Sumarvöllur – (152 atkvæði)

Farið verður í framkvæmdir upp að 30 milljónum en verkefni sem ekki ná inn í þann kostnaðarramma þurfa að bíða betri tíma. Nánari upplýsingar verða gefnar þegar endanlegt kostnaðarmat liggur fyrir