Nýjast á Local Suðurnes

Sprengdu flugelda inni í nýbyggingu

Nokkrar tilkynningar bárust lögreglunni á Suðurnesjum um áramótin vegna óæskilegrar meðferðar á flugeldum.

Í Sandgerði var tilkynnt um unglinga sem voru að kasta flugeldum inn í anddyri fjölbýlishúss. Lögregla fór á staðinn en þá voru þeir á bak og burt.

Í Njarðvík voru unglingar staðnir að því að sprengja flugelda inni í nýbyggingu. Þeir ætluðu að forða sér þegar þeir urðu lögreglu varir en það tókst ekki. Lögreglumenn ræddu við þá um atvikið og höfðu jafnframt tal af forráðamönnum þeirra.

Þá var tilkynnt um pilta að kasta flugeldum í íþróttahús. Þeir náðu að komast undan á hlaupum.

Eldur kom svo upp í bílskúr í Keflavík. Grunur leikur á að hann hafi kviknað út frá flugeldi sem lenti á skúrnum.

Auk þessa kviknaði í pítsukassa sem skilinn hafði verið eftir á eldavél í íbúðarhúsnæði í Keflavík. Einhverjar skemmdir urðu af völdum reyks.