Nýjast á Local Suðurnes

Isavia afhendir ekki gögn í Kaffitársmáli

Isavia hefur ákveðið að höfða mál til ógildingar úrskurði Úrskurðarnefndar upplýsingamála vegna þeirra gagna sem Kaffitár hefur óskað eftir. Ástæðan er að úrskurðurinn kveður á um að gögn með viðkvæmum fjárhagslegum upplýsingum skuli látin af hendi til Kaffitárs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia. Fyrirtækið hefur aftur á móti ákveðið að afhenda Gleraugnamiðstöðinni gögn þar sem þau innihalda ekki fjárhagslegar upplýsingar.

Í tilkynningunni segir ennfremur: Í máli Kaffitárs komst úrskurðarnefndin aftur á móti að þeirri niðurstöðu að fyrri úrskurður skuli standa. Sú niðurstaða er í ósamræmi við niðurstöðu nefndarinnar í máli Gleraugnamiðstöðvarinnar þar sem Isavia er í máli Kaffitárs gert að afhenda fjölda gagna sem innihalda samskonar upplýsingar og nefndin ákveður að séu undanþegnar í máli Gleraugnamiðstöðvarinnar. Að höfðu samráði við þau fyrirtæki sem umrædd gögn varða hefur Isavia því ákveðið að höfða mál til ógildingar úrskurði úrskurðarnefndarinnar. Isavia mun óska eftir flýtimeðferð málsins fyrir dómstólum.
Mikilvægt að dómstólar skeri úr
Isavia telur í ljósi þess mikla ósamræmis sem gætir í úrskurðum Úrskurðarnefndar um upplýsingamál að nauðsynlegt sé að fá úr því skorið hvaða gögn teljist viðkvæm fjárhags- og viðskiptagögn í skilningi upplýsingalaga. Þá telur félagið einnig mikilvægt að fá niðurstöðu í það hvernig túlka beri ákvæði upplýsingalaga gagnvart fyrirtæki í opinberri eigu sem ekki er stjórnvald.
Mun ítarlegri rekstrarupplýsingar en í opinberum útboðum
Úrskurðarnefnd útboðsmála hefur áður komist að þeirri niðurstöðu að forval um aðstöðu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hafi ekki verið opinbert útboð. Þær upplýsingar sem þátttakendur í forvalinu veittu eru alls eðlisólíkar og mun ítarlegri en þær upplýsingar sem bjóðendur í opinberum útboðum veita. Þannig fela upplýsingar sem veittar eru í opinberum útboðum, varðandi kaup á vörum og þjónustu, ekki í sér upplýsingar um langtímarekstur, tekjur, skulda- og eignastöðu, álagningarstefnu og viðskiptaáætlanir líkt og þátttakendur þurftu að upplýsa um í forvalinu til að hægt væri að leggja mat á boð þeirra um veltutengda leigu. Þessar upplýsingar varða viðkvæma fjárhags- og viðskiptahagsmuni fyrirtækjanna en undantekningareglum upplýsingalaga er einmitt ætlað að vernda slíka hagsmuni.