Ölvaðir ökumenn handteknir
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni tvo ökumenn sem grunaðir voru um að vera ölvaðir undir stýri. Í öðru tilvikinu var ökumaðurinn stöðvaður af borgara í Grindavík og handtók lögregla manninn skömmu síðar.
Báðir ökumennirnir voru færðir á lögreglustöð og sleppt að lokinni skýrslutöku.