sudurnes.net
30 milljónir í verkefni sem íbúar kusu um - Local Sudurnes
Kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Reykjanesbær er lokið. Alls bárust 3.484 atkvæði í þau 27 verkefni sem kosið var um og ánægjulegt hversu margir tóku þátt. Á kjörskrá voru um 16.200 einstaklingar en það voru íbúar 15 ára og eldri í Reykjanesbæ sem gátu tekið þátt í kosningunni. Framtíðarnefnd Reykjanesbæjar vann úr öllum innsendum hugmyndum og alls var kosið um 27 hugmyndir.Þær hugmyndir sem voru hlutskarpastar og munu núna fara í endanlegt kostnaðarmat: Ævintýralegt leiksvæði í Skrúðgarði – (372 atkvæði)Vatnsholt Rekjanesbæ (Trúðaskógur) – (327 atkvæði)Strandsvæði í Seylu – (225 atkvæði)Ærslabelgur og leiktæki í Inni Njarðvík – (218 atkvæði)Úti-vísindaleiktæki fyrir börn – (154 atkvæði)Fótboltagolfvöllur – Sumarvöllur – (152 atkvæði) Farið verður í framkvæmdir upp að 30 milljónum en verkefni sem ekki ná inn í þann kostnaðarramma þurfa að bíða betri tíma. Nánari upplýsingar verða gefnar þegar endanlegt kostnaðarmat liggur fyrir Meira frá SuðurnesjumHvetja íbúa til þess að taka þátt í könnun um sameiningu sveitarfélagaVogar byggja upp Miðsvæði – Fyrsti áfangi boðinn útAllir komnir með nýjar tunnur og flokkun hefst af fullri alvöruSamgönguáætlun samþykkt – 300 milljónir króna í bráðaaðgerðir á SuðurnesjumReykjanesbær endurskoðar fjölmenningarstefnuBæjarstjóri kynnir Stefnumótun Reykjanesbæjar – Íbúar hvattir til að taka þáttNafnasamkeppni vegna nýs skóla í DalshverfiKanna viðhorf bæjarbúa til Ljósanæturhátíðar [...]