Auðveldur Grindavíkursigur tryggði sæti í úrslitaeinvígi Dominos-deildarinnar

Grindvíkingar eru komnir í úrslitaeinvígið í Dominos-deild karla í körfuknattleik, en þar mun liðið annað hvort mæta KR eða Keflavík. Liðið valtaði yfir Stjörnuna í þriðja leik liðanna sem fram fór í dag, 69-104.
Grindvíkingum gekk vel í vörn se sókn í dag, liðið var til að mynda með um 50% nýtingu úr skotum fyrir utan þriggja stiga línuna og vörnin hélt svo sannarlega, en Stjörnumenn skoruðu einungis 29 stig í fyrri hálfsleik. Þá átti Dagur Kár Jónsson fínasta leik í fyrri hálfleik, en í honum skoraði kappinn 15 stig. Staðan í hálfleik var 54-29 Grindvíkingum í vil.
Stjörnumenn náðu svo ekki að komast inn í leikinn að neinu ráði í síðari hálfleik og Grindvíkingar lönduðu frekar auðveldum sigri.
Dagur Kár Jónsson skoraði 23, Þorsteinn Finnbogason 22 og Lewis Clinch Jr. 21.