Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn með amfetamín og e-töflur í augnskuggaboxi

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð um helgina játaði neyslu á amfetamíni. Jafnframt var hann með amfetamín í fórum sínum sem hann sagði vera um 15 grömm.

Farþegi í bílnum reyndist vera með meint amfetamín falið í augnskuggaboxi og jafnframt e – töflur. Þá fundust áhöld til fíkniefnaneyslu.

Annar ökumaður var tekinn úr umferð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Sýnatökur á lögreglustöð gáfu til kynna neyslu á amfetamíni. Umræddur ökumaður reyndist vera án ökuréttinda.