Nýjast á Local Suðurnes

Fangelsi og milljón króna sekt fyrir að skemma lögreglubíl

Maður sem ógnaði lögreglumönnum með öxi og skemmdi lögreglubíl þeirra í Reykjanesbæ á síðasta ári hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni, brot á vopnalögum, tilraunar til sérlegra hættulegrar líkamsárásar og eignaspjöll.

Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða eina milljón króna vegna skemmda á lögreglubifreið, en  hann hjó ítrekað með öxi í lögreglubílinn sem lögreglumennirnir komu á í útkallið. Skemmdi hann rúður bílsins, lista og vélarhlíf.

Maðurinn játaði sök og mat Héraðsdómur Reykjaness það honum til málsbóta í málinu auk þess sem að hann var samvinnuþýður við rannsókn málsins. Var maðurinn sem fyrr segir dæmdur í níu mánaða fangelsi en þar af eru sex mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára.