Förguðu 11 tonnum af rusli á rusladeginum í Innri-Njarðvík – Myndir!
Íbúar í Innri-Njarðvík söfnuðu tæplega 11 tonnum af rusli á rusladegi sem haldinn var þann 28. maí síðastliðinn, dagurinn verður gerður að árlegum viðburði hér eftir, síðustu helgina í maí. Reykjanesbær tók þátt í verkefninu með því að útvega gáma og poka auk þess að greiða fyrir förgun á ruslinu sem safnaðist.
Fjöldi fólks tók þátt í verkefninu, sem þótti takast einstaklega vel og endaði með grillveislu við Akurskóla. Þá má geta þess að nemendur Akurskóla týndu um hálft tonn af rusli í nærumhverfi sínu á þemadögum skólans fyrir nokkrum vikum síðan. Meðfylgjandi myndum hafa þátttakendur deilt á samfélagsmiðlunum að undanförnu.