Nýjast á Local Suðurnes

Valur Orri í Keflavík

Leikstjórnandinn Valur Orri Valsson gengur til liðs við lið Keflavíkur í körfuknattleik og mun leika með liðinu það sem eftir er á þessu tímabili.

Valur hefur síðastliðin ár leikið með Florida Tech Pardusdýrunum í bandaríska háskólaboltanum, en hann lék síðast með Keflavík tímabilið 2015-16. Þá skilaði hann 13 stigum, 5 fráköstum og 6 stoðsendingum að meðaltali í leik, segir á vef Karfan.is sem greindi fyrst frá þessum tíðindum.