Nýjast á Local Suðurnes

Lækka álagningarhlutfall fasteignagjalda

Á síðasta fundi bæjarráðs Grindavíkurbæjar var lagt fram minnisblað vegna útreiknings fasteignagjalda miðað við óbreyttar álagningarforsendur, auk yfirlits yfir matsbreytingar allra eigna í Grindavík. 

Ákveðið var að Grindavíkurbær muni lækka álagningarhlutföll fasteignagjalda fyrir árið 2023 til að koma til móts við mikla hækkun fasteignamats. Ekki var tekið fram hversu mikil lækkunin verður.