Karlakórar sameinast á ókeypis tónleikum í Duus-húsum
![kór](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/05/choir-408422_1280.jpg?resize=620%2C264)
Karlakórinn Keravan Mieslaulajat heimsækir Suðurnesin næsta miðvikudag. Kórinn kemur frá Kerava í Finnlandi sem er vinabær Reykjanesbæjar. Tilefni heimsóknar kórsins til Íslands er karlakóramót sem fram fer í Hörpunni um næstu helgi. Finnski karlakórinn hafði samband við menningarfulltrúa Reykjanesbæjar sem tengdi þá við Karlakór Keflavíkur og stungu Finnarnir upp á því að halda sameiginlega tónleika með Karlakór Keflavíkur. Þeir tónleikar verða næsta miðvikudagskvöld klukkan 20:00 í Bíósal Duus-húsa.
Á tónleikunum munu kórarnir flytja efni hvor af sinni efnisskrá en sameinast í tveimur lögum, einu finnsku og einu íslensku. Í tilkynningu frá Karlakór Keflavíkur segir að gaman verði að heyra hvernig svo ólík tungumál hljómi saman í munni söngmannanna.
Ókeypis er inn á tónleikana. Fyrr um daginn mun Norrænafélagið í Reykjanesbæ bjóða finnsku gestunum í útsýnisferð um Reykjanesið með leiðsögn staðkunnugra úr röðum félagsmanna.