Næsta samningalota erfið og snúin – Leggja 40 milljónir í verkfallssjóð
![metalworking-1405852_1280](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/09/metalworking-1405852_1280.jpg?resize=620%2C264)
Aðalfundur Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur var haldinn 24. apríl síðastliðinn. Þar kom fram að tæplega 5.000 félagsmenn voru að greiða gjöld til félagsins, konur eru 52% og karlar 48%.
Breytingar urðu á stjórnarskipan í félaginu, Kristrún Jónsdóttir verkakona lét af störfum eftir áratuga stjórnarsetu. Kristrúnu voru þökkuð vel unnin störf í þágu verkafólks, en hún sinnti störfum trúnaðarmanns í mörg ár og stóð sig þar með mikilli prýði. Henni var afhentur veglegur blómvöndur í þakklætisskyni. Nýr stjórnarmaður er Miroslaw Zarski og var hann boðinn sérstaklega velkominn til starfa.
Farið var yfir þróun í kjaramálum og ljóst er að næsta samningslota verður bæði erfið og snúin. Reikningarnir hjá VSFK sýna verulega góða afkomu á árinu 2017. Samstæðureikningur sýnir tæplega hundrað og fjórtán milljónir í plús. Í ljósi góðrar afkomu þá ákvað fundurinn að leggja 40 milljónir í Verkfallsjóð til undirbúnings í komandi kjarasamningum.