Nýjast á Local Suðurnes

Bestu lög Björgvins í Hljómahöll – Frítt á sýninguna Þó líði ár og öld fyrir tónleikagesti

Björgvin Halldórsson mun stíga á stokk í Hljómahöll þann 25. mars næstkomandi, en þá verða haldnir einstakir tónleikar á persónulegum nótum með Björgvini, sem er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar. Björgvin og hljómsveit hans rifja upp hans einstaka feril í gegnum tíðina í tónum og tali.

Björgvin hefur verið í tónlistinni í hartnær 50 ár. Hann sló gegn og var kosinn Poppstjarna Íslands árið 1969 og hefur haldið þeim titli síðan. Lögin sem hann hefur hljóðritað og flutt á tónleikum skipta hundruðum og því af nógu að taka og mörg þeirra hafið fest rætur í þjóðarsál Íslendinga og eru uppáhaldslög fjölmargra Íslendinga.

Tónleikagestir geta upplifað sýninguna Þó líði ár og öld um Björgvin Halldórsson sem opnaði í Rokksafni Íslands í nóvember sér að kostnaðarlausu áður en tónleikarnir hefjast og í hléi. Það er sýning sem engin má missa af!

Tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Húsið opnar tímanlega fyrir þá sem vilja njóta sýningarinnar, kl. 19:30.