sudurnes.net
Bestu lög Björgvins í Hljómahöll - Frítt á sýninguna Þó líði ár og öld fyrir tónleikagesti - Local Sudurnes
Björgvin Halldórsson mun stíga á stokk í Hljómahöll þann 25. mars næstkomandi, en þá verða haldnir einstakir tónleikar á persónulegum nótum með Björgvini, sem er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar. Björgvin og hljómsveit hans rifja upp hans einstaka feril í gegnum tíðina í tónum og tali. Björgvin hefur verið í tónlistinni í hartnær 50 ár. Hann sló gegn og var kosinn Poppstjarna Íslands árið 1969 og hefur haldið þeim titli síðan. Lögin sem hann hefur hljóðritað og flutt á tónleikum skipta hundruðum og því af nógu að taka og mörg þeirra hafið fest rætur í þjóðarsál Íslendinga og eru uppáhaldslög fjölmargra Íslendinga. Tónleikagestir geta upplifað sýninguna Þó líði ár og öld um Björgvin Halldórsson sem opnaði í Rokksafni Íslands í nóvember sér að kostnaðarlausu áður en tónleikarnir hefjast og í hléi. Það er sýning sem engin má missa af! Tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Húsið opnar tímanlega fyrir þá sem vilja njóta sýningarinnar, kl. 19:30. Meira frá SuðurnesjumJón og Gunnar með tónleika í tilefni 50 ára afmælis StapaErlingur sýnir margvísleg verk í Tjarnarsal Ráðhúss ReykjavíkurHjörleifur betri að mati allra þjálfara og komst áfram í The Voice IcelandJón Jónsson heldur tónleika í HljómahöllPalla-ball og Voice stjarnan Ellert Heiðar á Sjóaranum síkátaMugison heldur tónleika í Stapa – Gestir [...]