Banaslys á Reykjanesbraut

Karlmaður á fertugsaldri lést eftir árekstur vörubifreiðar með tengivagn og bifhjóls á mótum Reykjanesbrautar og Hafnarvegar í Reykjanesbæ í morgun.
Tilkynnt var um umferðarslys á mótum Reykjanesbrautar og Hafnavegar í Reykjanesbæ til lögreglu klukkan 07:09 í morgun. Bifhjólinu hafði verið ekið suður Reykjanesbraut og vörubifreiðin var á leið af Hafnavegi norður Reykjanesbraut þegar slysið varð. Reykjanesbraut var lokuð í rúmar þrjá klukkustundir vegna slyssins.
Lögreglan á Suðurnesjum vinnur að rannsókn á tildrögum slyssins með aðstoð tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.