Nýjast á Local Suðurnes

Efla áhuga ungs fólks á sjávarútvegi – Codland vinnuskólinn hefst 18. júlí

Codland vinnuskólinn í samstarfi við Vinnuskóla Grindavíkur verður haldinn í Grindavík 18.-21. júlí n.k. Börn sem fædd eru á árunum 2001 og 2002 (8. og 9. bekkur) og hafa unnið í Vinnuskóla Grindavíkur í sumar er gefinn kostur á að taka þátt. Þátttakendur fá greitt í samræmi við launatöflu Vinnuskólans. Fjöldi þátttakenda takmarkaður.

Markmið

Codland vinnuskólinn hefur það að markmiði að efla áhuga ungs fólks á sjávarútveginum og sýna þátttakendum nýja sjávarútveginn og þau víðfeðmu áhrif sem hann hefur á okkar samfélag.

Dagskrá

Nemendur fá fræðslu um íslenskan sjávarútveg, fara í vettvangsferðir í fiskvinnslur og skip, fá starfskynningar, kynnast starfsemi frumkvöðla og vinna verkefni í nýsköpun.

Hvað er Codland?

Codland var stofnað árið 2012 og er í eigu Vísis hf. og Þorbjarnar hf. Markmið Codland er að stuðla að framþróun í sjávarútvegi með áherslu á fullnýtingu, þróun og samstarf. Codland hefur að leiðarljósi að hámarka nýtingu sjávarafurða og hvetja til umræðu og samstarfs sem skapar grundvöll til frekari þróunar og auknu verðmæti afurða.

Skráning stendur yfir á codland@codland.is – fyrir 13. júlí n.k.