Nýjast á Local Suðurnes

Enn skemmdarverk á leik- og íþróttasvæðum í Grindavík

Enn eru unnar skemmdir á leik- og íþróttasvæðum í Grindavík en stutt er síðan við greindum frá skemmdarverkum á körfboltavelli við Hópsskóla. Bæjaryfirvöld í Grindavík benda fólki á að skemmdarverkin kosta vinnu bæjarstarfsmanna auk þess sem töluverður kostnaður fylgir viðgerðum á mannvirkjunum.

Eitthvað virðist það vefjast fyrir sumum Grindvíkingum hvernig á að ganga um sameiginlegar eigur okkar bæjarbúa. Fréttin um skemmdir á körfuboltavellinum var varla komin í loftið þegar okkur barst ábending um fleiri skemmdarverk. Í þetta skiptið var það sparkvöllurinn við Iðuna sem fékk að finna fyrir spörkum skemmdarvarga og karfa við Hópsskóla sem er mölbrotin eftir grjótkast.

Starfsmenn bæjarins hafa í dag unnið að viðgerð, sem bæði kostar vinnu þeirra og peninga. Það eru til margar betri leiðir til að eyða vinnutíma bæjarstarfsmanna en þessi, fyrir utan þá staðreynd að kostnaðurinn kemur úr okkar eigin vasa og bitnar á öðrum verkefnum sem þurfa að sitja á hakanum, segir á heimasíðu Grindavíkurbæjar.

karfa_brotin grindavik