Nýjast á Local Suðurnes

Á fimmta tug losnað úr sóttkví á Suðurnesjum síðasta sólarhringinn – Á sjöunda tug smitaðir

Tvö kórónuveirusmit greindust á Suðurnesjum á síðastliðnum sólarhring, en nú eru 64 einstaklingar smitaðir af veirunni á Suðurnesjasvæðinu samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is.

 Þá hefur töluverður fjöldi Suðurnesjafólks snúið úr sóttkví, eða tæplega 50 síðasta sólarhringinn. Þannig sæta nú 288 einstaklingar sóttkví á svæðinu samkvæmt sama vef, en 333 í gær.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja birtir reglulega fréttir af starfseminni á Facebook og eru Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook.