Tveir handteknir vegna fíkniefnamáls
Talsvert magn af meintum fíkniefnum fannst við húsleit sem lögreglan á Suðurnesjum fór í að fenginni heimild í fyrrakvöld.
Í tilkynningu lögreglu segir að um hafi verið að ræða kannabisefni og kókaín sem fannst á mörgum stöðum í húsnæðinu. Tveir húsráðendur voru handteknir vegna málsins og vistaðir í fangaklefum þar til að skýrslutökur höfðu farið fram.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri nafnlausum upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.