Nýjast á Local Suðurnes

Ákveðnar starfsstéttir fá forgang að þjónustu grunn- og leikskóla

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út lista yfir það starfsfólk í framlínustörfum sem hefur forgang að grunn- og leikskólaþjónustu, frístundastarfi og þjónustu dagforeldra vegna kórónuveirunnar.

Á listanum, sem birtur var á vef Vísis, eru meðal annars ráðherrar og ráðuneytisstjórar, lögreglumenn, sjúkraflutningamenn, starfsfólk sjúkrahúsa, starfsfólk í leikskólum og starfsfólk sveitarfélaga. Í frétt Vísis er haft eftir fulltrúa Almannavarna að listinn sé ekki endanlegur og í stöðugri endurskoðun.

Listinn yfir þær starfsstéttir sem hafa forgang að þjónustu leik- og grunnskóla, frístundastarfi og dagforeldrum:

Stjórnsýslan

• Ráðherrar

• Ráðuneytisstjórar

• Upplýsingafulltrúar ráðuneyta

• Aðstoðarmenn ráðherra

• Skrifstofustjórar

• Öryggisstjórar ráðuneyta

• Öryggistrúnaðarmenn ráðuneyta

• Ritarar ráðherra

• Ritarar ráðuneytisstjóra

• Sóttvarnalæknir

• Landlæknir

• Aðstoðarmaður sóttvarnalæknis

• Aðstoðarmaður landlæknis

• Fangaverðir

• Framlínustarfsfólk hjá Seðlabanka Íslands

Viðbragðsaðilar

• Lögreglan

• Embætti ríkislögreglustjóra

• Slökkvilið

• Sjúkraflutningar

• Landhelgisgæslan

• Rauði krossinn

• Slysavarnafélagið Landsbjörg

Heilbrigðisstarfsfólk

• Sjúkrahús

• Hjúkrunarheimili

• Dvalarheimili

• Heilsugæsla

• Bakvarðasveit velferðarþjónustu

Á sveitarfélagsvísu

• Starfsfólk grunnskóla

• Starfsfólk leikskóla

• Starfsfólk frístundarheimila

• Starfsfólk heimila fyrir fatlað fólk

• Starfsfólk hjúkrunarheimila

• Starfsfólk þjónustuíbúða fyrir aldrað fólk

• Starfsfólk í heimaþjónustu

• Starfsfólk í heimahjúkrun

• Starfsfólk í Heilbrigðiseftirliti

• Framlínustarfsfólk í veitum; rafveita, vatnsveita, frárennsli, gagnaveita

• Starfsfólk í sorphirðu

• Þjónustufulltrúar í þjónustuveri

• Starfsfólk bráðavaktar barnaverndar

• Starfsfólk í þjónustuúrræðum barnaverndar

• Upplýsingafulltrúar sveitarfélaga

• Starfsmenn neyðarstjórna

• Skrifstofustjórar

• Sviðsstjórar sveitarfélaganna

• Bæjarstjórar

• Borgarstjóri