Nýjast á Local Suðurnes

Íbúum hleypt til Grindavíkur um tvær leiðir – Svona verður framkvæmdin

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um eftirfarandi aðgang íbúa að Grindavík í dag 15. nóvember.

Eingöngu fyrir íbúa sem hafa ekki komist inn á svæðið. Tekur til þeirra íbúa sem þegar er búið að hafa samband við en sú vinna er enn í gangi. Fólk mæti ekki nema búið sé að hafa samband við það.

Innkomuleiðir fyrir íbúa Grindavíkur verða tvær í dag:

Um Suðurstrandarveg að austan til Grindavíkur að söfnunarstað. Þar fær fólk frekari leiðbeiningar. Íbúar sem fá að fara inn til Grindavíkur eiga að koma á söfnunarstaðinn sem er bílastæðið við gossvæðið, við Fagradalsfjall. Þessi aðkomuleið er ætluð íbúum við eftirtaldar götur:
Efrahóp, Austurhóp, Miðhóp, Víðgerði, Austurvegur, Hópsvegur, Hópsbraut, Lóuhlíð, Mávahlíð, Spóahlíð, Fálkahlíð, Brattahlíð, Austurvegur og Þórkötlustaðahverfi í heild sinni..

Um Grindavíkurveg, en sú aðkomuleið er einungis ætluð íbúum á völdum götum í norðvesturhluta Grindavíkur. Verið er að hringja í íbúa við þær götur og úthluta þeim tíma og leiðbeina um framkvæmdina. Viðkomandi íbúar fara í björgunarsveitarbifreiðum frá söfnunarstað við Grindavíkurveg að heimilum í Grindavík og til baka.

Til athugunar fyrir íbúa:
Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara
Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heimili
Skráið niður lista yfir það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað
Munið eftir húslykli
Búr fyrir gæludýr ef þörf er á
Poka eða annað undir muni
Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilinu.
Þau sem fara mega ekki vera með bráðaofnæmi fyrir dýrum því það verða gæludýr með í för í bakaleiðinni.
Þetta er eingöngu til þess sækja mjög mikilvæga hluti s.s. gæludýr, lífsnauðsynleg lyf, hugsanlega vegabréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heimilisfólk
Mjög mikilvægt er að allir sem koma að þessari aðgerð hlýði vandlega öllum fyrirmælum lögreglu sem stýrir þessari aðgerð og virði tímamörk.

Áætlunin getur breyst án fyrirvara, en þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglu. Heimild til þess að fara inn í bæinn er ábyrgðarhluti og ekki léttvæg ákvörðun og þýðir alls ekki að svæðið sé að öðru leyti opið fyrir umferð.