Nýjast á Local Suðurnes

Gult í kortum vegna hækkandi hitastigs

Það verður talsverð eða mikil rigning og ört hækkandi hitastig á sunnanverðu landinu í dag, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands.

Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli auk þess sem mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám.