Sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð út – Maður hótaði að beita skotvopnum á Ásbrú
![logreglan bill](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/08/logreglan-bill1.jpg?resize=620%2C264)
Lögreglan á Suðurnesjum auk sérsveitar ríkislögreglustjóra var kölluð út um klukkan átta í morgun vegna manns sem hótaði að beita skotvopnum gegn öðrum manni á Ásbrú. Viðbúnaður lögreglu var mikill, en lögreglumenn voru búnir skotheldum vestum og hjálmum.
Fram kemur í frétt mbl.is um málið að tvær lögreglubiðfreiðar með sex lögreglumönnum frá lögreglunni á Suðurnesjum, auk meðlima úr sérsveit ríkislögreglustjóra fóru að heimili mannsins að Ásbrú þar sem samningamaður lögreglunnar ræddi við hann.
Maðurinn kom úr sjálfviljugur og við leit á heimili hans fundust engin skotvopn og var maðurinn einn í íbúðinni.