Nýjast á Local Suðurnes

Verulega dregið úr skjálftavirkni í nágrenni Grindavíkur

Verulega hefur dregið úr skjálftavirkni í nágrenni Grindavíkur að undanförnu en vísbendingar eru um að kvikuinnskot við vestanverðan Reykjanesskaga haldi áfram á næstu misserum.

Þetta kom fram á fundi Vísindaráðs almannavarna sem hittist á fjarfundi fimmtudaginn 30. apríl vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Fundinn sátu vísindamenn frá Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans og ÍSOR, ásamt fulltrúum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglunni á Suðurnesjum.

Í byrjun apríl dró úr landrisi við Þorbjörn og um miðjan mánuðinn lauk þessari seinni landrishrinu. Í kjölfar landrissins mældist sig sem má útskýra með því að jarðskorpan jafnar sig þar sem kvikan í innskotunum kólnar og dregst saman.  Á sama tíma hefur dregið verulega úr skjálftavirkni.  Þetta bendir til þess að kvikuinnflæði undir Þorbjörn sé lokið í bili.  Þrátt fyrir að ekki mælist lengur landris við Þorbjörn, gætir enn dálítilla landbreytinga á stærra svæði.  Eins og þróun atburða hefur verið síðustu mánuði verður að gera ráð fyrir þeim möguleika að kvikuinnskot við vestanverðan Reykjanesskaga haldi áfram á næstu misserum, segir á vef Veðurstofunnar.

Veðurstofa Ísland ásamt Jarðvísindastofnun, ÍSOR og HS-Orku mun áfram fylgjast vel með þróun mála á Reykjanesskaga og þeim möguleika að kvikuinnskot við vestanverðan Reykjanesskaga haldi áfram á næstu misserum.