Nýjast á Local Suðurnes

Heilsuleikskólinn Háaleiti fékk góða gesti frá Rúmeníu í heimsókn

Vikuna 20. – 25. október voru staddir á landinu góðir gestir frá Rúmeníu. Þetta eru 3 fulltrúar frá Special Olympics í Rúmeníu, Roxana Ossian , Corina Radu, Viorel Mocanu  og 3 prófessorar frá Háskólum í Búkarest og Targovista, Aura Boda, Gabriel Popescu og Bianca Chera-Ferrario

Special Olympics á Íslandi  hóf formlegt samstarf við Special Olympics í Rúmeníu í janúar 2015 þegar  fulltrúar Íslands fóru til Rúmeníu til að kynna sér verkefnið YAP – Young Athlete Program. Verkefnið er alþjóðaverkefni sem sett var á fót af Special Olympics International  með það að markmiði að efla  hreyfingu ungra barna með sérþarfir.

heilsuleikskoli2

Gabriel Popescu leiðbeinir ungum fimleikadreng í Gerplu en Gabriel keppti á Ólympíuleikum og er margreyndur þjálfari og alþjóðadómari í fimleikum

 

Heilsuleikskólinn Háaleiti í Reykjanesbæ er hluti af samstarfshópnum og hefur skólinn unnið með sértæka hreyfingu fyrir nemendur með sérþarfir síðastliðið ár. Vinnan hefur skilað sér í miklum framförum í hreyfiþroska þeirra barna sem hafa notið góðs af þessu úrræði.

Hópurinn heimsótti ungbarnaheilsuleikskólann Ársól í Reykjavík og Heilsuleikskólann Háaleiti og Háskólann í Reykjavík, auk þess sem fylgst var með sundkennslu barna í Klettaskóla og íþróttaæfingum.

Samstarf háskólakennara við Special Olympics í Rúmeníu hefur m.a. byggst á þjálfun barna með sérþarfir þar sem aðgangur er ókeypis að opnum tímum í húsnæði  skólanna og nemendur aðstoða  kennara sína í sjálfboðavinnu.