Nýjast á Local Suðurnes

Tölvur úr gagnaveri enn ófundnar – Sérsveitin aðstoðaði lögreglu við húsleit

Rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum á þjófnaði á um 600 tölvum úr gagnaverum hefur verið haldið áfram af fullum krafti. Meðal annars hefur verið farið í húsleitir að fenginni heimild.

Í gær var meðal annars farið í húsleit í iðnaðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu, með aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og sérsveitar ríkislögreglustjóra, þar sem tugir tölva voru innan dyra. Tíu manns voru færðir til skýrslutöku á lögreglustöð vegna gruns um aðild að málinu. Reyndust tveir þeirra án atvinnuleyfis hér á landi og fleiri atriðum var ábótavant svo sem varðandi húsaleigumál. Tölvurnar sem stolið var úr gagnaverunum eru þó enn ófundnar og er rannsókn málsins haldið áfram af fullum þunga.